blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

11.26.2004

Um Greddu og rottur

Svekkjandi að vera svona í öðru tímabelti en vinir mans! Það lítur sem sagt út fyrir að ég fara ekki í bústaðinn fyrr en á morgun. Það eru svo margir í kringum mig sem eru með lítil börn eða börn á leiðinni. Manni hefnist fyrir að vera graður þegar maður var tvítugur :-/ Alveg búin að sjá það að ég verð að komast oftar út úr höfuðborginni. ég þrífst ekki nægilega vel á þvi að vera bara hér! Þarf að viðra dreyfbýlistúttuna í mér með reglulegum ferðalögum og ómenguðu lofti. Er að fara í tima hjá einkaþjálfara á eftir! já maður er orðin svo væld! he he.. get sagt það á meðan þetta tímabil stendur yfir.. veit ekki hvað það verður langt í þetta skipti!!!! En eins og er er ég og gamla kvikindið massa duglegar.. mætum enn 3 í viku og erum að hamast í svassi.. þrátt fyrir að við vitum ekkert hvað við erum að gera... kunnum ekki reglurnar.. eða neitt... Þetta er svona eins og tilraun í hvert skipti.. tveimur rottum hent inní búr og þær hamast þangað til þær eru teknar út aftur.. alverlega stefnulaust allan tíman .. en þeim finnst þetta mest ljómandi. :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home